Hilmar Þór Sigurjónsson með með fisk við Reykjafoss í Varmá í fyrra

Að höfðu samráði við Hveragerðisbæ og Veiðifélag Varmár verður veiði í Varmá óheimil um ótilgreindan tíma. Veiði hefst því ekki 1. apríl eins og til stóð. Ástæðan er sú að samkvæmt mælingum Heilbrigðiseftirlits Suðurlands eru vatnsgæði Varmár undir viðmiðunarmörkum, vegna fráfalls frá hreinsistöð Hveragerðisbæjar við Vorsabæ. Vinna við endurbætur er að hefjast, enda er brýnt að bregðast við aðstæðum skjótt og af ábyrgð. Vatnsgæðamælingum verður fjölgað á næstunni til að meta betur stöðuna en veiði í ánni hefst ekki að nýju fyrr en aðstæður leyfa.

Veiðimenn sem eiga leyfi í ánni fá þau endurgreidd að fullu eða geta nýtt þau við kaup á öðrum veiðileyfum hjá SVFR. Skrifstofa félagsins mun setja sig í samband við veiðimenn á næstu dögum til að ganga frá málum.