FréttirOpnun

Laxinn mættur í Elliðaárnar

Fyrsti laxinn myndaður í fiskateljaranum í dag

Fyrsti laxinn sem sögur fara af sem skilaði hafi sér úr sjó í Elliðaárnar þetta árið, fór upp fiskteljarann með tilheyrandi myndatöku kl 17:55 í dag. En opnað var á fiskför um teljarann í hádeginu í dag í kjölfar þess að vöktun á útgöngu gönguseiða laxins lauk þetta árið. Öll líkindi benda til mikillar laxgengdar þetta sumarið í Elliðaárnar. Þar kemur fyrst við sögu að veðurfarslega þá var sérlega hagstætt vor og sumarbyrjun á Höfuðborgarsvæðinu árið 2025 með hliðsjón jákvæðum áhrifum á sjóþroskun og tilheyrandi útgöngu gönguseiða úr Elliðaánum, sem munu skila sér sem smálaxar í Elliðaárnar í sumar. Ástand sjávar hefur verið gott ef marka má fréttir af því búsvæði á undangengnu ári svo sem endurspeglast að hluta til í ástandi annarra fiskistofna hér við land svo væntanlega hefur lífsbarátta laxins í hafi á liðnu ári gengið skikkanlega. Auk þessara jákvæðu forsendna þá má vænta þess að í sumar fáist einnig góð viðbót í hrygningargöngu laxins í Elliðaárnar úr röðum hoplaxa sem gengu til sjávar í vor og skila sér strax til hrygningar að nýju í sumar. Enda var hrygningarstofn Elliðaán haustið 2025 stærri en verið hefur um áratugaskeið eða um 3400 laxar. Því er líklegt að venju fremur margir hoplaxar hafi lifað vetrarvistina af í Elliðaánum í vetur sem leið og séu því líklegir til að skila sér afturbata úr sjó í sumar.