Fréttir

Laxá í Kjós með metveiði, ekkert svar frá Vegagerðinni vegna losunar í Laxá

Liðin vika var sú besta við Laxá í Kjós á þessu veiðitímabili – og í raun í mörg ár. 210 löxum var landað við oft á tíðum erfið skilyrði. Áin nálgast nú 1.300 laxa veiði og gæti endað í tölu sem við höfum ekki séð mjög lengi.

Útkoman er afrakstur mikillar vinnu landeigenda, leigutaka og velunnara árinnar. Sem dæmi hafa veiðimenn sleppt aftur yfir 90% af veiddum laxi til að auka við hrygningarstofninn. Á sínum tíma var ákvörðun tekin um að hlúa að ánni og fiskistofnum með sjálfbærum og náttúrulegum hætti, gönguseiðasleppingum var alfarið hætt og reynt að vinna á skaðvöldum, svo sem minki.

Það að viðhalda perlu sem þessari krefst stöðugrar vinnu og aðgæslu. Á meðfylgjandi myndum má sjá starfsmenn Vegagerðarinnar freista þess að losa afganga úr eiturefnabílum á bakka Laxár í sumar til að spara sér ómakið að eigin sögn.

Verknaðurinn var stöðvaður umsvifalaust áður en hann hófst, og ábending send til Vegagerðarinnar enda um lögbrot að ræða. Nú fimm vikum síðar hefur ekkert svar borist við ábendingunni, líklegast er viðhorf þessa ríkisfyrirtækis hið sama og annara opinberra aðila til náttúru í Hvalfirði.