FréttirRisafiskur

Risafiskur úr Svalbarðsá

Þórður Ingi Júlíusson með risafiskinn úr Svalbarðsá

Eftir þeim bestu heimildum sem við höfum veiddist risafiskur í Svalbarðsá í Þistilfirði í dag og var fiskurinn 103 cm og veiðimaðurinn enginn annar en Þórður Ingi Júlíusson, bróðir Jón Þórs Júlíussonar leigutaka og eigenda Hreggnasár. En fiskinn veiddi Þórður í Laxahyl en áin hefur gefið 13 laxa það sem af er veiðitímanum, sem verður að teljast fín  veiði. 

Nýbúið er að laga veiðihúsið, búið að byggja  stærri stofu eldhús og aukaherbergi.