FréttirLaxveiði

Flottur veiðitúr, hundrað laxar veiðst

Árni Jóhannesson

„Velheppnaður Jöklutúr hjá okkur hjónum. Vorum með eina stöng í þrjá daga og lönduðum 9 löxum og misstum annað eins,“ sögðu þau Guðrún Una Jónsdóttir og Árni Jóhannesson, sem voru að koma úr Jöklu. En Jökla var að rjúfa 100 laxa múrinn núna fyrir nokkrum mínútum.

„Laxinn er vel haldinn og þessir fiskar sem við lönduðum voru á bilinu 67 – 84 cm. Áin var ennþá nokkuð vatnsmikil og straumþung og þýddi lítið annað en að vera með tvíhendur á lofti til að koma þessum flottu fiskum á land. 

Jökla byrjar því með stæl og veiðimenn sem eru á leiðinni á þetta fallega veiðisvæði geta bara farið að hlakka til,“ sögðu þau Guðrún og Árni eftir veiðitúrinn.

Guðrún Una Jónsdóttir