FréttirHreindýrSkotveiði

Tarfaveiðar hefjast í dag


Náttúruverndarstofnun vekur athygli á því að veturgamlir tarfar eru alfriðaðir. Tarfaveiði miðast því við tarfa sem eru tveggja vetra og eldri.

Fram til 1. ágúst skal ekki veiða tarfa sem eru í fylgd með kúm þannig veiðarnar trufli ekki kýr og kálfa í sumarbeit.

Veiðimenn á veiðisvæði 9 eru hvattir til að veiða tarfa vestast á svæðinu. Það er gert til að fækka dýrum á svæðinu og minnka líkurnar á því að þau fari vestur yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi. Það er einnig gert til að koma í veg fyrir gróðurskemmdir, ef dýrin verða of mörg á svæðinu.

Veiðileyfi

Nú ættu allir tarfaveiðimenn að hafa fengið veiðileyfi sín send með pósti. Ef leyfin berast ekki verða veiðimenn að hafa samband við Náttúruverndarstofnun sem fyrst.
Veiðileyfi á kýr verða send út um 20. júlí og ættu þá að hafa borist leyfishöfum fyrir upphaf veiðitíma á kúm sem hefst 1. ágúst.

Tilmæli við veðar á kúm

Veiðimönnum er bent á að tvær fyrstu vikur veiðitímabilsins er veiðimönnum gert að forðast í lengstu lög að fella mylkar kýr svo draga megi eftir megni úr áhrifum veiðanna á kálfa. Þess í stað eru veiðimenn eindregið hvattir til að veiða geldar kýr. Er í þessu sambandi bent á hlutverk og skyldur leiðsögumanna við að aðstoða og leiðbeina veiðimönnum við val á bráð.

Veiðimenn eru minntir á að hafa skotvopnaleyfi, veiðikort og hreindýraveiðileyfið meðferðis.