Þverá örugg í toppsætinu
„Já veiðin gengur vel hjá okkur í Þverá í Borgarfirði og áin komin yfir 900 laxa í 911 laxa,“ sagði Ingólfur Ásgeirsson en Þverá er örugglega í efsta sætinu, veiðin gengur frábærlega. Síðan kemur Þjórsáin með 415 laxa.
„Gengur vel þessa dagana og flott veiði,“ sagði Haraldur Einarsson á Urriðafossi um Þjórsána, sem hefur verið að gefa vel síðustu daga. Norðurá í Borgarfirði er í þriðja sætinu og vekur töluverða athygli að hún er ekki hálfdrættingur á við Þverá. Það hafa 380 laxar og vatnið er frábært í henni þessa dagana. Miðfjarðará er næst með 279 laxa og svo Elliðaárnar með 210 laxar.
Ekki vantar laxinn í Elliðaárnar núna og verður öruuglega fjör næstu vikurnar á bökkum þar. Laxá í Kjós er að komast í 200 laxa og morgunveiðin einn morguninn í vikunni 33 laxar, sem er flott veiði. Jökla er komin í 190 laxa og Haffjarðará með 180 laxa. Laxá í Leirársveit 178 og Langá með 157 laxa. Svona mætti lengi telja.
Vatnið er frábært í ánum, mikið ringt og á eftir að rigna næstu daga. Það er allavega ekkert þurrkasumar þetta árið, það er alveg á hreinu og oft mikið vatn.

