Átta laxar einn sjóbirtingur
„Við vorum að klára í Flekkudalsá og hollið veiddi átta laxa og einn sjóbirting, misstum helling af fiski, þetta var bara fínt,” sagði Anna Lea Friðriksdóttir, sem var að hætta veiðum í hádeginu í dag og bætti við,” það var mikið vatn eftir miklar rigningar, en fiskurinn var lítið að sýna sig. En laxinn virðist vera kominn á allmarga staði í ánni. En vatnið sjatnað núna og verður væntanlega flott fyrir næstu holl í ánni. Það hafa veiðst 26 laxar núna,” sagði Anna Lea ennfremur.
Og ef við kíkjum á næstu ár, reyndar ekki á Fells eða Skógarstönd hefur Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum verið að gefa væna laxa núna í byrjun. „Já það hafa veiðst 10 laxar hjá okkur og nokkrir vænir, 10 punda fiskar, sem eru flottir fiskar,” sagði Sæmundur Kristjánsson er við spurðum um ána.
„Bleikjan er líka byrjuð að gefa sig vatnið er flott hjá okkur núna,” sagði Sæmundur í lokin.

