FréttirVeiðisaga

Bjössi í Vatnsdal minnist Noregskonungs

Þá er einn magnaðasti maður sem ég hef kynnst fallinn frá. Ég fékk að eyða viku með Haraldi fyrir nokkrum árum á bökkum Vatnsdalsár. Þessi vika gaf mér minningar sem ég mun aldrei gleyma. Þvílíkt gæðablóð, mikill húmoristi, frábær veiðimaður og fyrst og fremst góður maður og vinur.

Hláturinn hans, sögurnar og gleðin sem hann færði með sér munu alltaf fylgja þessum minningum. Það er erfitt að hugsa til þess að hann sé ekki lengur með okkur, en ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast honum og deila þessum tíma með honum.
Hláturinn hans glymur enn um dalinn.

Blessuð sé minning Haraldar Noregskonungs, segir Björn K. Rúnarsson í Vatnsdal um Harald Noregskonung.

Björn og Haraldur Noregskonungur við Vatnsdalsá