FréttirUrriði

Flott veðurspá fyrir Urriðagönguna

Urriðagangan hin árlega við Öxará á Þingvöllum verður laugardaginn næstkomandi 10. október og hefst kl. 14:00. Spáð er mildu veðri og stórurriðarnir þegar mættir í Öxará til að sinna hrygningunni. Hér að neðan er hlekkur Þjóðgarðsins á Þingvöllum á viðburðinn með nánari upplýsingum. Við (urriðarnir, ég og starfsfólk þjóðgarðsins) hlökkum til að hitta ykkur á Þingvöllum á laugardaginn.

Um að gera að drífa sig a staðinn, fiskurinn mættur og flott spá.

Myndir teknar síðustu helgi við Öxará /Myndir; María Gunnarsdóttir