FréttirOpnun

Jökla eins og stöðuvatn

Myndin hér var tekin fyrir neðan Klapparhyl í dag og er hylurinn eins og stöðuvatn að sjá

Það gengur erfiðlega að veiða í Jöklu því ekki minnkar vatnsmagnið og stefnir í erfiða fyrstu viku alla vega. Einungis er hægt að veiða neðsta svæðið fyrir neðan Steinbogann þar sem laxastiginn er þar er ekki fært í þessu vatni. Því er 3/4 hluti veiðisvæðisins óvirkur og munar um minna. Um 80 rúmmetrar mælist nú rennslið ofar í Jökuldalnum og niðurfrá má reikna með að séu því um 100 rúmmetrar! Spáin er ekki góð, hiti og líka úrkoma og snjóbráð verður því áfram mikil næstu daga má reikna með enda gríðarlegur snjór ennþá í fjöllum hér fyrir austan eftir kalt vor.