Spáir ágætum göngum af eins árs laxi
„Ég er að minnsta kosti ekki svartsýnn núna,” segir Jóhannes Guðbrandsson fiskifræðingur, sem kveður mælingar á sjávarhita í fyrrasumar gefa fyrirheit um nokkuð gott sumar í laxveiðinni. Þetta kemur fram í viðtali við tímaritið Veiðimaðurinn sem er nýkomið út.
Veiðisumarið sem nú er að ganga í garð gæti skilað þokkalegum göngum af eins árs laxi ef marka má mælingar á hitastigi sjávar frá í fyrrasumar.
Jóhannes Guðbrandsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir vísindamenn fylgjast með sjávarhita á þeim slóðum í hafinu sem þeir telji á laxinn fari á er hann gengur niður úr ánum. Hitinn sé kannaður í júlí, þegar gönguseiðin eigi að vera kominn til sjávar. Þetta hafi verið að venju kannað í fyrrasumar. „Það leit alveg þokkalegt út, eiginlega alveg eins og í júlí 2023 fyrir veiðina 2024 sem var þokkaleg, miðað við síðustu ár,” segir Jóhannes um sjávarhitann í júlí í fyrra.
Spurður hvort munur sjáist eftir landshlutum kveðst Jóhannes aðeins gera sínar rannsóknir fyrir Vesturland, þar sem upplýsingar skorti um farleiðir og hafsvæði sem lax annars staðar leitiá. „En Húnavatnssýslur voru mikil vonbrigði í fyrra. Stórlaxinn sem átti að koma lét ekki sjá sig,” segir hann. Á því hafi menn ekki skýringar.
Viðtalið er fróðleg lesning sem Garðar Örn Úlfarsson tók fyrir Veiðimanninn. En næstu dagar munu skera úr um veiðina í sumar, Jónsmessustraumurinn var snemma þetta árið en það verður fróðlegt að sjá með næsta straum. Hann er þessa dagana.

