Ölfusá að gefa vel af laxi
„Já veiðin gekk fyrir helgi við fengum sex laxa og einn sjóbirting,” sagði Rúnar Ásgeirsson en við heyrðum í honum nýkomnum úr Ölfusá af Pallinum. Veiðin hefur verið á fleygiferð í Ölfusá og vel veiðst síðustu daga.
„Þetta var í fínu lagi, skal ég segja þér,” sagði Rúnar í lokin.
Veiðin hélst góð um helgina og voru að koma laxar á hverjum degi, alla vega fimm fiskar í dag og lax að ganga á hverju flóði þessa dagana. Sjóbirtingurinn er líka að gefa sig þarna eins og víða núna og lax í bland við væna sjóbirtinga.

