355 laxar komnir í Urriðafossi
„Veiðin er öll að koma til í Urriðafossi í Þjórsá og núna eru komnir 355 laxar, það hefur verið flott veiði síðustu daga,” sagði Haraldur Einarsson á Urriðafossi við Þjórsá er við heyrum í honum í gærkveldi.
„Það var flottur dagur 20 laxar veiddir á aðal svæðinu og þar af þrír maríulaxar, 2 laxar komu á hinu svæðinu í dag. 355 laxar hafa veiðst núna og þetta er allt að koma, fiskurinn kom seint eins og víðar þetta sumarið,” sagði Haraldur enn fremur. Veiðimaðurinn Björn Hlynur átti sturlaða vakt í Urriðafossi um helgina, laugardag og veiddi eina vakt 16 laxa, sem er frábær veiði.
Laxinn er bara seinna á ferðinni en fræðingar og veiðimenn áttu von á. En hann er mættur, vatnið er frábært í ánum núna. Það er spáð miklum rigningum næstu daga, úrfelli.

