FréttirVeiðitölur

Ung og efnileg veiðikona í Ytri-Rangá

Veiðisumarið sem enginn vildi missa af er farið að styttast í annan endann en ennþá er flott veiði víða og fiskurinn að veiðast í vatnsmiklum veiðiánum. Haustbragur er kominn á veiðina en veiðiskapurinn er ágætur.

Lax númer 4000 í Ytri-Rangá kom á land síðasta föstudag en topp veiðistaðan er þannig núna að Eystri-Rangá hefur gefið flesta laxa þetta sumarið 4100 fiska, síðan kemur Ytri-Rangá með 4050 laxa og svo Þverá í Borgarfirði með 2600 laxa.

„Veiðin hefur gengið vel hjá okkur í Eyrsti-Rangá, komnir yfir 4000 laxar,” segir Jóhann Davíð Snorrason um Eystri-Rangá sem er á toppnum.

En það var 11 ára Dagbjört Hekla Gunnarsdóttir sem landaði laxi númer 4000 í Ytri-Rangá og gerði áfangann enn sérstakari sú staðreynd að þetta var jafnframt hennar fyrsti lax. 

Maríulaxinn hennar var eftirminnilegur fyrir hana þessa ungu veiðikonu í Ytri-Rangá, örugglega ekki hennar síðasti lax.