FréttirOpnun

Níu laxar í opnun Þverár í morgun

Eyjólfur Andrésson í Síðumúla og Aðalsteinn Pétursson með einn af fyrstu löxum sumarsins úr Þverá

„Þetta byrjaði vel það komu níu laxar á land í morgun og við Andrés fengum 3 laxa og Kirkjustrengurinn gaf vel,” sagði Aðalsteinn Pétursson við opnun Þverár í morgun. En hver laxveiðiáin af annarri opnar þessa dagana og fyrstu dagarnir gefa vel.

„Það veiddust þrír á undan okkar í Kirkjustrengnum og við fengum þrjá líka, það er kominn fiskur víða í ána, þetta voru allt tveggja ára flottir laxar,” sagði Aðalsteinn í lokin.