Flottir fiskar á heiðinni
„Við félagarnir tókum hlé frá Skagaheiðinni eftir fimm ár þar í röð og ákváðum að prufa Arnarvatnsheiðina,” sagði Jóhannes Snær og bætti við; „Vorum komnir í skálann okkar við Arnarvatn Litla um kaffileytið á sunnudegi og veiddum Arnarvatnið þann daginn fram á kvöld. Vatnið virðist vera fullt af fiski og gerðum við fína veiði þar. Daginn eftir héldum við í sunnanvert Úlfsvatnið og gerðum sömuleiðis hörku veiði þar fram að kvöldmat. Fiskurinn var aðallega að taka fluguna Hnakka sem er hnýtt úr skegghárum af félaga okkar á Selfossi, brúnt sílalíki með flassi í skott. Þrótturinn var lítill fyrir veiði á heimferðadegi einhverra hluta vegna. Fórum sáttir heim af heiðinni og komum til með að fara þangað aftur að ári,” sagði Jóhannes Snær í lokin.

