Sumarið er tíminn
„Ég var svo lánsamur að fá að veiða í einni af perlum Vestfjarða, Laugardalsá, alveg óvænt. Var á svæðinu og datt inn á eina vakt,“ segir Gunnar Helgason og bætir við: „Þetta er stórkostleg á!!! Allur fiskur í boði, vötn, urriðasvæði (maðkur leyfður fyrir krakkana) og bleikja hér og þar. Og geggjað laxasvæðið! 250 laxar veiddust í fyrra á tvær stangir!!!
Maður er líka alveg einn í náttúrunni, fjarri öllum vegum nema sveitaveginum sem tveir bílar óku mjög hljóðlega eftir. Einu hljóðin sem maður heyrði var álftakvak og jaðrakana tíst – hann fylgdi mér reyndar eftir hálfa vaktina – og svo auðvitað hljóðið í veiðihjólinu!!!

Guð minn góður, hvað þetta var dásamlegt!
Ég ætla að fara með barnabörnin þegar þau verða orðin fleiri og nógu stór! Get ekki beðið,“ sagði Gunnar enn fremur.

