Tannastaðir að gefa góða veiði
„Veiðin gekk bara vel hjá okkur á Tannastöðum, fengum fimm laxa ég og veiðifélaginn, flott bara,“ sagði Ólafur Hannesson, sem var að koma af Tannastöðum í Hvítá. „Þetta er þriðja skiptið sem ég fer að veiða í sumar, fór einu sinni í júlí á Tannastaði og svo fór ég einn dag í Veiðivötn. Það er útiveran og félagsskapurinn sem skiptir höfuðmáli, en svo er bónus þegar maður nær að veiða eitthvað,“ sagði Ólafur enn fremur.
Lax númer 130 var að koma á land í Ölfusánni steinsnar fyrir neðan, þar sem Ólafur var fyrir neðan að veiða. En Ölfusá hefur verið fengsæl í sumar og gefið vel af laxi og sjóbirtingi.
Og ennþá er hellingur eftir af veiðitímanum svo sénsinn er töluverður.

