Sótti maríulaxinn þar sem allt hófst!
Hin árlega ferð foreldranna í Laxá í Dölum hefur verið lokahnykkurinn á sumarfríinu í mörg ár. Fyrsta ferðin var farin í júlí árið 2016 en þá var Ármann Ingi nýbúinn að líta dagsins ljós og rúmlega 8 vikna gamall. Hann fékk því að fljóta með í sína fyrstu veiðiferð og andaði að sér laxalyktinni við árbakkann meðan foreldrarnir veiddu til skiptis. Um leið og Ármann komst til vits og ára lét veiðideillan fljótt á sér kræla. Hann var farinn að hnýta flugur sjálfur 8 ára, eyddi 9 ára afmælisdeginum sínum frekar á hnýtingarkvöldi með köllunum frekar en að slá upp afmælispartýi og eyðir öllum dögum niðrá höfn. Hann var fljótur að fá afa sinn til þess að skutla sér í örheimsóknir í foreldrafríið í Dalina og yfirtaka flugveiðistöngina í sílengri mæli.
Þetta sumarið var engu frábrugðið. Tækifæri á laxveiði er ekki látið framhjá sér fara og okkur tilkynnt að veiðiprinsinn væri á leiðinni í heimsókn. Við áttum Þegjanda, áinn full af fiski en erfiðir í töku eins og á mörgum stöðum. Markið færðist þó nær 1000 löxum og hollið spennt. Mamman var með staðalútbúnaðinn klárann fyrir skyndiheimsókn og ármann vatt sér í dressið. Ármann hafði fengið lax á spún árinu á undan í erfiðum aðstæðum og pabbinn gripið inní til þess að landa honum fyrir klak. Pabbinn hafði verið sóttur til saka fyrir yfirtökuna og þráði Ármann ekkert heitar en að setja sjálfur í og landa sínum laxi sjálfur, þá helst á flugu.
Ármann fékk stöngina og kastaði, hann átti nokkur köst þar til BÚMM það var negla. Ármann sem er poll rólegur að eðlisfari, setti sig í hafnarstellingar og byrjaði að draga inn eins og hann ætti lífið að leysa. Þá æstustu leikar, foreldrarnir kölluðu hvort í kapp við annað „upp með stöngina“, „gefðu eftir“, „dragði inn“, „eltann“, „upp með stöngina“, „bakkaðu“, „uuuupppp með stöngina“ og þar fram eftir götunum. Það leit þó út fyrir að þetta væri nú bara enn einn laxinn hjá Ármanni, hann tók allri leiðsögn með jafnaðar geði, tók allt inn, herti mótstöðuna, gaf eftir, elti, skottaðist á milli klappanna og stöngin uppi. Það var eins og hann næði laxinum á sitt band, laxinn hreinlega fann vænlegasta löndunar staðinn og eftir 20 mínútur var maríulaxinn kominn á land, hængur 80 cm með rauða fransins í kjaftinum, vel tekinn og flottur.


