FréttirVeiðitölur

Sextíu laxar komnir í Langá 

Sigurjón Gunnlaugsson með lax úr Langá á Mýrum í gærdag

Svo virðist sem laxveiðin hafi aðeins lagast, fiskur hefur gengið á síðasta stórstreymi. „Alla vega eru veiðimenn að fá veiði víða sem betur fer fyrir alla. Straumurinn hefur skilað einhverju. Það eru að koma fallegir sprækir fiskar á land hjá okkur í Langá,” sagði Sigurjón Gunnlaugsson og bætti við; „það er alltaf að sleppa einhverjir fiskar. Þetta er flott og fiskar að koma á hverju flóði núna. Morguninn gæti orðið góður hérna í Langá og fiskurinn að gefa sig,” sagði Sigurjón enn fremur.

Langá hefur gefið 60 laxa.

„Veiðin gekk bara frábærlega í Laxá í Leirársveit, flott vatn og fiskur að ganga á hverju flóði, hollið fékk vel yfir 20 laxa,” sagði Skúli Sigurz Kristjánsson sem var að koma úr Laxá eftir góða veiði. „Ég tók fimm laxa og einn sjóbirting á þremur tímum í gær,” sagði Skúlisigurz enn fremur.