FréttirGæsSkotveiði

Nokkrir túrar nokkrir fuglar

Gunnar Ólafur Kristleifsson með veiðina einn daginn

„Við erum búnir að fara nokkra túra ég og sonurinn, fengum 4 heiðagæsir og svo um daginn fengust 14,“ sagði Gunnar Ólafur Kristleifsson aðspurður um upphafið á gæsaveiðitímanum en hann fer yfirleitt fljótlega fyrstu daga tímabilsins á gæs.

Skotveiðimenn eru byrjaðir að veiða og það er töluvert af fugl, veiðin verið ágæt hjá flestum. „Við vonum auðvitað að við náum í fleiri fugla á tímabilinu og svo eru það rjúpurnar næst á eftir gæsinni. Það er alltaf eitthvað i þessum veiðiskap. Fengum svo 11 í fyrradag, þetta gengur bara nokkuð vel,“ sagði Gunnar Ólafur enn fremur um gæsaveiðina.