FréttirOpnun

Víðidalsá opnaði á ellefu löxum

Einar Páll Kjærnested með flottan lax úr Langá á Mýrum /Mynd: Jógvan

„Já það hafa veiðst nokkrir laxar og þetta er allt að koma til, flottir fiskar ég hef ekki fengið neinn ennþá. Það kemur allt með tíð og tíma,” sagði Jógvan Hansen við Langá á Mýrum en veiðifélagi hans Einar Páll Kjærnested fékk flottan á rauðan Hexagon litaðann.

„Við eigum eftir að veiða aðeins ennþá og allt getur gerst, fiskurinn er að ganga á hverju flóði,“ sagði Jógvan við Langá enn fremur.

Elliðaárnar gáfu laxa í dag og fleiri ár opnuðu í dag eins og Víðidalsá veiddist vel. „Það veiddust 11 laxar í dag,” sagði Róbert Haraldsson við Víðidalsá ánægður með veiðina í dag. Vatnsdalsá gaf tvo eftir því sem við fréttum í dag opnunardaginn. 

Tveir laxar veiddust í opnun Ytri-Rangár í dag, svo byrjunin í Víðidalsá er með því besta sem í boði er þessa dagana. Tveir laxar komu á land í Aðaldalnum. Talan tveir er talan sem mikið er talað um á bökkunum núna.

Rögnvaldur Guðmundsson með lax úr opnun Víðidalsár í Húnavatnssýslu