Flott veiði í Gíslholtsvatni – silungsveiðin víða góð
Silungsveiðin hefur víða verið mjög góð, fiskurinn vænn og veiðimenn að fá flotta veiði. Arnarvatnsheiðin hefur gefið vel og Skagaheiðin einnig. Veiðimenn voru í Gíslholtsvatni fyrir skömmu og veiddu vel af fiski, flotta fiska og væna.
„Já ég var í vatninu fyrir skömmu með ungum og efnilegum veiðimanni, Jóhanni Magna og hann er verulega lunkinn,“ sagði Anna Bender og bætti síðan við; „við vorum í Gíslholtsvatni, stærsti fiskurinn sem við fengum var 60 sentímetrar og 5 pund, næsti var 50 cm og 4 pund. Jóhann er alltaf að veiða en veiðir mest á flugu en ég með með maðkinn. Veiðin gekk bara frábærlega en þetta er fyrsti túrinn hjá mér í sumar,“ sagði Anna enn fremur.
Vatnaveiðin gengur vonum framar þessa dagana, margir hafa náð sér í Veiðikortið og nota það óspart í veiðiferðum. Hraunsfjörðurinn hefur verið að gefa bleikjur og Vatnasvæði Lýsu fína silunga.


